Flekamót kallast mörk á milli Jarðskorpuflekanna. Þegar flekar rekast í sundur nefnist það fráreksbelti. Jarðskorpa myndast þannig að þegar flekar rekast i sundur sem heitir fráreksbelti, Þá flæðir bergkvika upp úr iðrum jarðar sem storknar og myndar nýja jarðskorpu. Atlantshafshryggurinn sem liggur eftir Atlantshafinu er dæmi um slíkt sprungusvæði, hann nær á einum stað upp fyrir sjávarmál sem er á Íslandi. Áhrifin sem Atlandshafshryggurinn hefur á Ísland með því að eldvirknin er meiri en gengur og það gerist á hryggnum. Samreksbelti eru svæðin þar sem hreyfing er á flekum sem eru á móti hvor öðru. Það myndast niðurstreymisbelti ef meginlandsskorpa mætir hafsbotnsskorpu, þar sem eðlisþyngri hafsbotnsskorpa fer undir meginlandsskorpuna.